Fyrirlestur + fundur!
4.flokkur karla
Knattspyrnufélagið Þróttur
4.maí
Foreldrar – forráðamenn
Í kvöld (fimmtudaginn 4.maí) er næringarfyrirlestur / foreldrafundur fyrir leikmenn og foreldra niður í Þrótti. Sölvi Fannar hjá Heilsuráðgjöf ætlar að heimsækja okkur og rabba aðeins við okkur, og getur fólk örugglega spurt hann um hitt og þetta.
Fundurinn hefst kl.20.00 inn í stóra sal – og fyrir (eða eftir) fundinn tökum við örstuttan foreldrafund til að ræða saman um Laugarvatnsferðina, Rey-Cup og annað sem er á dagskrá hjá flokknum í maí og í sumar. Allt ætti að vera búið um kl.21.00!
Ég veit að þetta er stuttur fyrirvari en ég vona svo sannarlega að menn komist. Og ef annað hvort foreldri eða leikmaður kemst ekki, þá endilega annað hvort!
Sjáumst hress,
Ingvi (869-8228) og f.h, foreldraráðs, Mási.
- - - - -
p.s.
Æfingin á morgun, föstudag, verður svo skv. nýja maí planinu:
Yngra árið æfir kl.14.30 – 15.45 á gervigrasinu
og
Eldra árið æfir kl.15.45 – 17.00 á gervigrasinu.
5 Comments:
ekki allt í standi? Arsenal leikur klukkan 7?
allir með stand
ég steingleymdi þessu
er æfing í dag (föstudag)
sorry sá ekki neðst
Post a Comment
<< Home