Saturday, September 19, 2009

Bónus - æfing + Uppskeruhátíðin!

Jójójó.

Þrennt í essu:

1. Best að senda á mig í meili (ingvisveins@langholtsskoli.is) reikningsnúmer og kennitölu - og ég legg inn á ykkur bónus penining á morgun (fim).

2. Gamla eldra árið í 4.fl - sem sé leikmenn fæddir ´95 - byrja á æfingum í þessari viku (sem yngra ár í 3.fl). Fyrsta æfingin var víst í gær - en svo er aftur æfing í dag (mið) kl.15.30-17.00 á nýja gervigrasinu (og svo aftur á morgun, fim, á sama tíma og stað).

3. Uppskeruhátíð yngri flokka Þróttar í Knattspyrnu fer fram á sunnudaginn 27. sept frá kl. 14:00-15:30 og verður hún haldin á Broadway (Hótel Ísland).

Þar verða veittar viðurkenningar fyrir ástundun í yngstu flokkunum auk þess sem leikmenn ársins og þeir sem hafa tekið mestum framförum eru verðlaunaðir í eldri flokkunum, þ.e. 3. og 4. flokk. Nýjir þjálfarar verða kynntir sem og þeir þjálfarar kvaddir sem láta af störfum.

Ný æfingatafla verður kynnt og þá verður hið fræga kökuhlaðborð á sínum stað en undanfarin ár hafa flottustu foreldrar á Íslandi (Þróttarforeldrarnir) séð um að baka og lagst á eitt við að stútfylla sameiginlegt hlaðborð af kræsingum.

Við óskum eftir því að sjálfsögðu þetta árið að allir leggi sitt af mörkum og komi með bakkelsi á hlaðborðið. Þá óskum við eftir aðstoð foreldra c.a. klukkutíma fyrir hátíðina og klukkutíma eftir hátíðina. Þeir sem geta aðstoðað sendi Helga Björns póst á netfangið
helgibj68@gmail.com

Foreldrar eru að þessu sinni beðnir um að koma með heimabaksturinn á Broadway á milli kl. 12:00-13:00 á sunnudeginum.

Við hvetjum ykkur síðan öll til að að mæta með börnunum á uppskeruhátíðina og þiggja kaffi og með því.

kv. Unglingaráð Knattspyrnudeildar


- - - - - -

6 Comments:

At 3:34 PM, Anonymous Anonymous said...

má koma með annað en bakkelsi

 
At 3:34 PM, Anonymous Anonymous said...

á brodway

 
At 3:34 PM, Anonymous Anonymous said...

á brodway

 
At 11:37 PM, Anonymous Anonymous said...

Hva! a madur að med eitthvad annad en bakkelsi,veistu kannski ekki hvad það er

 
At 4:01 PM, Anonymous Anonymous said...

??????????????????

 
At 9:02 PM, Anonymous ingvi said...

ja hérna - þrátt fyrir 5 comment er ég eiginlega á gati hvað er verið að spyrja um! má koma með eitthvað annað en bakkelsi? hvað ertu að meina! snakk, nammi. þetta eru bara kökur og svoddann og málið dautt. ekki stressa þig of mikið á þessu félagi.

 

Post a Comment

<< Home