Restin af vikunni!

Sælir.
Nettar æfingar í dag. fjórar túpur og svona (okey, nóg af
essum túpum). Kjappinn svo kominn með nýjan síma og
svona (þannig að bannað að senda sms án þess að henda með
nafni - öll númerin mín farin :-(
Alla veganna, restin af vikunni verður svona:
- - - - -
Mið 12.júlí:
- Æfing kl.14.00-15.30 hjá yngra árinu upp á Suðurlandsbraut. Fótboltagolf og 11 v 11.
- Kvöldæfing hjá eldra árinu!! - Hjólum á sparkvöll og tökum smá bolta. Kíkjum líka aðeins á leik hjá 2.flokk. Mæting kl.19.00 niður í Þrótt á góðu hjóli, með nettan hjálm og 250 kall fyrir hressingu! Komið heim um kl.22.00. Passið að búa ykkur vel ef veðrið verður leiðinlegt. ( og ekkert mál að kíkja á æfinguna um daginn ef menn komast ekki í þetta).
Fim 13.júlí:
- Létt æfing hjá öllum kl.16.00-17.15 á Valbirni (ath: ekki á suðurlandsbraut). Menn fá yfirlit yfir mætingar, HM verðlaun afhent, blað um Rey-Cup ofl.
- Mfl v Stjarnan á Valbirni kl.20.00. Skyldumæting og boltasækjarar klárir!
Fös 14.júlí:
- Hópferð á Superman Returns (þótt menn séu kannski ekkert svaðalega spenntir þá er þetta mórölsk ferð og myndin hlýtur að sleppa). Förum einhvern tímann eftir hádegi - og erum að vinna í góðum díl (látið okkur vita ef menn eru í vinnunni eftir hádegi). Hjólum hugsanlega á staðinn.
Helgin:
- Nett frí. Niðrí bæ - upp í sveit - í laugina - út í bolta!
- - - - -
Allt þarf svo að vera klárt fyrir Rey-Cup fljótlega.
Allir búnir að skila af sér dagataladótinu.
Heyrið í okkur ef það er eitthvað.
kv
ingvi og co.
11 Comments:
Hey Ingvi ég kemst ekki finn ekki hjólið mitt
Hreiðar
Af hverju ferðu ekki með kortið í nýja símann og vistar númerin af símanum yfir á simakortið og þá þarftu ekki að byrja á nýrri símaskrá.
Ingvi æfiningin er á sama tíma og markmannsæfing
Yo! ég er feitt ánægður með að hafa þessa kvöld æfingu!! við ættum að hafa þannig oftar!!
hey. spurning hvort þú veljir ekki frekar markmannsæfinguna. .is
fáum við ekki bráðlega meira um Danmerkurferðina
verða Marmarakökur?
kveðja gulli
tid erud halvitar
Mér langar í marmarakökur !
þetta var fín leikur hjá meistaraflokki. en það er eitt sem þið þurfið að bætta, það er að skora.
kveðja gulli
hvenar kemur i sambati med bioid
Post a Comment
<< Home